H Á T Í S K A . Í . H R I N G H Á T Í S K A . Í . H R I N G

Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um vörukaup á vöru/-um á vefnum www.buymychic.is sem og í verslun (hér eftir BMC).

Almennt

BMC áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Drop-off / Collection

Hægt er að sækja vörur til okkar á opnunartíma á Óðinsgötu 8b, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar við uppgjör.

Hægt er að leggja inn vörur þriðjudaga og fimmtudaga á opnunartíma á Óðinsgötu 8b, 101 Reykjavik. Nánari upplýsingar við innlögn.

 

Opnunartími:

Þri-Lau - 12:00-18:00

 

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef ekki er valið að sækja pöntun í verslun BMC, þá er pöntun send með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. BMC ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá BMC til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Vöruskil

Varan er í umboðssölu og því er ekki hægt að skila vöru sem að keypt er í BMC. Varan er seld í því ástandi sem að er skráð á hana og ekki hægt að skila ef eitthvað er ekki eins og þú bjóst við. Sjá nánar að neðan. Þú getur aftur á móti komið aftur með vöruna og selt hana hjá BMC.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

BMC er umboðssala og leggur ríka skyldu á viðskiptavini að kanna ástand vörunnar áður en hún er keypt. Vörum í umboðssölu fæst hvorki skilað né skipt þegar þær eru verslaðar í verslun.

Vinsamlegast athugið að samkvæmt 16. gr. lögum um neytendasamninga hefur neytandi ávallt rétt á að falla frá samningi við fjarsölu innan 14 daga og þarf ekki að tilgreina neina ástæðu fyrir ákvörðun sinni um að falla frá samningi.

 

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Ef kaupandi er fyrirtæki gilda lög um þjónustukaup nr. 42/2000. Varnarþing er héraðsdómur Reykjavíkur ef til ágreinings kemur.

Vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja góða upplifun fyrir notendur. Vafrakaka (e. Cookie) er lítil textaskrá sem vafrinn vistar í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir þennan vef. Upplýsingarnar í kökunni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu og þær upplýsingar til að bæta vefinn, þjónustuna o.fl.

Með því að samþykkja notkun á vafrakökum heimilar þú vefnum m.a.

  • að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður og sníða þá leit, þjónustu, ofl. í samræmi við fyrri notkun og stillingar

  • að safna saman tölfræðilegum upplýsingum sem notaðar eru til gefa innsýn til að bæta vefsvæðið og þjónustuna

  • að birta notendum auglýsingar

  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um vefinn

Við notum Google Analytics til að til vefmælinga. Upplýsingar sem Google Analytics safnar eru ekki persónugreinanlegar upplýsingar. Við notum Facebook og Google Ads til að mögulega birta auglýsingar til notenda sem heimsótt hafa vefsvæðið en það er gert án þess að notast við persónugreinanlegar upplýsingar.

Ef þú vilt ekki heimila slíkt getur þú slökkt á þeim í stillingum í vafranum. Góðar upplýsingar um stillingar á vafrakökum er að finna hér:allaboutcookies.org

Meðferð persónuupplýsinga

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, kennitölu, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér, skráningu á póstlista eða vegna annarra samskipta við þig.Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té eða kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við lög 90/2018 um persónvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679.

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Óskir þú frekari upplýsingar eða viljir láta eyða gögnum um þig hafðu þá samband við hello@buymychic.is

 

Fyrir seljendur

Eftir að umsókn um sölu á vöru hefur verið send og sendingarleið verið valin, fer varan í matsferli hjá BMC. Innifalið í slíku ferli er ljósmyndun, mat á ástandi vöru og verðhugmynd.  Matsferlið tekur hámark 5 daga. Niðurstöður matsins og afstaða til umsóknar eru sendar á seljanda í kjölfarið

Eftir að umsókn um sölu á vöru hefur verið samþykkt af BMC, samþykkir seljandi sölu á vörunni í a.m.k. 6 mánuði frá dagsetningu umsóknar. Ef vara er lengur en 3 mánuði í sölu áskilur BMC sér rétt til að setja allt að 50% afslátt á vöruna.

Ef vara hefur ekki selst í lok 6 mánaða tímabils, hefur seljandi val um að annars vegar taka vöruna til baka, eða hins vegra að selja hana áfram á afslætti.

Mikilvægt: Vörur verða að vera alveg hreinar og með öllum miðum (care label) þegar eru afhentar til BMC. Vörur skulu vera gufaðar og tilbúnar í myndatöku við afhendingu. 

BMC tekur 35% umboðslaun með því skilyrði að varan sé tilbúin (gufuð og hrein), þurfi að vinna vöruna (td. gufa) tekur BMC 40% umboðslaun.

BMC ábyrgist ekki skyldi vörum vera stolið/skemmdar í verslun.

 

Fyrir kaupendur

Viðskiptavinur sem skilar vöru hefur kost á að endurselja vöruna í gegnum BMC heimasíðu, án aukagjalds, ef beiðni berst um endursölu á hello@buymychic.is innan 5 daga frá kaupum á vöru. 

 Ef vara er gölluð, eða ástand vöru óásættanlegt hefur viðskiptavinur 5 daga til þess að hafa samband í gegnum tölvupóst ásamt útskýringu og unnið verður úr endurgreiðslu/skilum þegar varan hefur verið metin.

 

Síðast uppfært 29.07.2024